Veðurpirr

Ríkar stúlkur líkjast gullúrum, - kassinn er bestur.  Þetta spakmæli er í boði dagbókarinnar.

Það snjóar og snjóar. Er komin með leið á þessum snjó en get þó huggað mig við það að veðurspáin segir að bráðlega muni koma brjálað rok og rigning og allur snjórinn hverfur eins og dögg fyrir sólu. Í staðinn fer bara allt á flot og vatn flæðir um allt. Þá get ég bloggað pirringsblogg um það að ég þoli ekki þessa rigningu endalaust. Ég heppin. Mikið er nú gott að hafa alltaf eitthvað til að pirra sig yfir.

Þangað til næst elskið hvert annað, líka í pirringnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mummi Guð

Það er gott að þú fáir útrás fyrir pirringinn þinn á netinu, svo ég þurfi ekki að hitta pirraða Fjólu!

Mummi Guð, 6.2.2008 kl. 21:55

2 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Dagbókin mín býður uppá eftirfarandi spakmæli...

"þeir sem elska heitt eldast aldrei.  Þeir deyja ef til vill úr elli, en þeir deyja samt ungir"

eyddu ekki tímanum í pirring... það er tímasóun.  Taktu þetta sem heilræði frá konu sem er búin að vera að kafna úr óþarfa pirring út í allt og alla í allan dag.... en er að reyna að læra betri siði og er að ná sér niður

Rannveig Lena Gísladóttir, 6.2.2008 kl. 22:05

3 Smámynd: Ólafur fannberg

er líka þreyttur á snjó Eigum við að pirrasr saman hehehe

Ólafur fannberg, 6.2.2008 kl. 22:19

4 Smámynd: Fjóla Æ.

Já Mummi minn, það er gott.

Lena. Er eiginlega að gera grín að sjálfri mér með þessu pirringsbloggi. Er í raun ekki svona pirruð eins og ég hljóma.

Ólafur. Já held að það sé bara fínt að pirrast í kór.

Fjóla Æ., 6.2.2008 kl. 22:45

5 Smámynd: Mummi Guð

Ólafur. Er það ekki sérstakt að vera þreyttur á snjó og heita Fannberg?

Mummi Guð, 6.2.2008 kl. 23:55

6 Smámynd: Ólafur fannberg

hehehe gott skot

Ólafur fannberg, 7.2.2008 kl. 07:07

7 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Alveg til í að spóla aðeins og fá vor!

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 7.2.2008 kl. 09:30

8 Smámynd: Gísli Torfi

Ekki botna ég í þessu að láta veður pirra sig... Þá er nú lífið ekki sérstaklega skemmtilegt...

Við búum á Íslandi og hér er ókeypis veður í öllum litum daglega

Eigðu góðann dag Fjóla og Guð blessi þig og þína

Gísli Torfi, 7.2.2008 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 110309

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband