Mig langar til mömmu!

CryingInLove

Mamma er á Tenerife og þar er hlýtt og gott. Hér er kalt og ... Ég var að lesa frétt frá Vísindanefnd Sameinuðuþjóðanna þar sem segir að hlýnun jarðar sé staðreynd. Hvar er þessi hlýnun? Hún er örugglega ekki í Keflavík ég verð að minnsta kosti ekki mikið vör við hana núna. Frost, rok og snjór. Brrr oj.

Annars er ég komin aftur til meðvitundar eftir yndislegan magavírus sem heimsótti mig á fimmtudaginn. Reyndar man ég ekki eftir því að það hafi verið fimmtudagur, það var miðvikudagur og síðan allt í einu föstudagur. Fúlt að missa heilan dag úr og að það sé ekkert til að hafa móral yfir. Jæja, svona er þetta bara, gengur bara betur næst. 

Er núna búin að gera helling fyrir merkisafmæli Gullrassins míns sem er á morgun. Hann verður 3 ára sem er í sjálfu sér ekkert merkilegt en í upphafi árs var okkur fjölskyldunni sagt af læknum að við gætum ekki búist við því að hann næði þeim aldri. Gullrassinn hefur reyndar verið þekktur fyrir að fara þvert á allar fyrirfram ákveðnar leiðir og það ætlar hann að gera einnig að þessu sinni, sem betur fer. Hef svo oft verið næstum búin að missa hann að ég veit það ekki sjálf og get sagt ykkur þó svo hægt sé að venjast ýmislegu þá er ekki hægt að venjast þessu og óska ég engum að þurfa að upplifa slíkt.  Má ég benda ykkur á heimasíðuna hans fyrir afmæliskveðjur, það væri gaman að fá kveðju.

Þangað til næst elskið hvort annað og knúsist, ekki veitir af í þessum kulda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Gísladóttir

Til hamingju með soninn  
(Búin að kvitta líka á síðunni hjá afmælisbarninu )

Anna Gísladóttir, 18.11.2007 kl. 00:18

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ætla að gefa afmælisbarninu "kvittun" á eftir (er mun heiðarlegri en Domino´s) og vil líka óska múttunni innilega til hamingju!!! Knús í kuldann, hér á Skaganum er líka frekar kalt! Brrrrrrr ....

Guðríður Haraldsdóttir, 18.11.2007 kl. 00:27

3 Smámynd: Ragnheiður

Líka búin að kvitta hjá litlum kraftaverkasnúði...til hamingju Fjóla mín og Mummi með 3 ára afmælið

Ragnheiður , 18.11.2007 kl. 01:42

4 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Til hamingju með daginn   Heimsótti piltinn á hans síðu og skildi eftir sporin mín þar.  Flott mynd af gaurnum !

Rannveig Lena Gísladóttir, 18.11.2007 kl. 11:01

5 Smámynd: Dísa Dóra

Til hamingju með litla gullrassinn og kraftaverkakallinn ykkar

Dísa Dóra, 18.11.2007 kl. 17:23

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með litlu, duglegu hetjuna ykkar Mummi og Fjóla

Huld S. Ringsted, 18.11.2007 kl. 20:26

7 identicon

Til hamingu með gullrassinn  kveðja úr snjó og kulda á SKagaströnd

Stína, Rósa, Lísa og Freyja

stína Blöndal (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 20:29

8 identicon

uhhh,,,, betra er seint en aldrei? Löngu búin að kvitta hjá guttanum á síðunni hans  . Ætla samt ekkert að afsaka mig meir, hafðu það gott Fjóla mín.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 110310

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband