15.8.2008 | 11:03
Chillað sumar
Núna er farið að síga á seinni hluta sumarsins. Það þýðir að maður verður að hætta að chilla og láta alvöruna taka við. Krakkarnir hafa reyndar lítið verið að chilla þó ég hafi gert það en þau hafa haft í nógu að snúast í sumar. Elstu yrðlingarnir verið að vinna á fullu og sú litla einbeitt sér af miklum krafti að áhugamálum sínum, söng og fótbolta. Skólarnir byrja í næstu viku og ég veit að afleggjarana hlakkar mis mikið til. Sá stóri er staddur í þessum tölum orðum í Tyrklandi í útskriftarferðalagi með skólafélögum sínum og ekki veit ég hvort hann verði námstækur í vetur því ég frétti af honum í yfir 50°C hita og óttast að heilinn sé nú well done. Hann verður bara að dvelja í frysti um tíma þegar hann kemur aftur heim svo hann geti nú klárað skólann, því þrátt fyrir að vera í útskriftarferð þá útskrifast hann ekki fyrr en næsta vor. Eldri stelpan heldur bara áfram með sitt nám sem hún byrjaði á síðasta haust. Yngri guttinn stendur á tímamótum í vetur því hann mun sitja í 10. bekk. Síðan kemur skottið sem er að fara í 6. bekk.
En aftur að mér. Nú er víst kominn tími á að fara að vinna utan heimilis. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég ætla að taka mér fyrir hendur en ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur af því, það kemur. Það gengur víst ekki að hanga bara heima og gera ekki neitt. Sumarið hefur verið fínt fyrir mig og reyndar okkur öll. Við erum búin að ferðast svolítið og á þessum ferðum okkar förum við gjarnan í hina ýmsu leiki. Eins og til dæmis að hugsa sér persónu eða hlut, telja bíla og svo framvegis. Þessir leikir gera langar og leiðinlegar bílferðir stuttar og bráðskemmtilegar. Mæli með þessu fyrir alla. Ég hef m.a. komist að því í þessum leikjum okkar hvað hóruhús og viti eiga sameiginlegt, sem er ágætis afrek út af fyrir sig. Veist þú hvað þau eiga sameiginlegt? Á leiðinni á Dalvík um síðustu helgi fórum við í bílaleik, þ.e. að telja ákveðinn lit á bílum. Ásdís sigraði með töluverðum yfirburðum með 8 stig, við Mumminn fengum bara 1 og 2 stig. Verð þó að taka fram að leikurinn hófst ekki fyrr en við ókum upp úr Mosfellsbæ, stigin hefðu legið öðruvísi hefðum við byrjað strax í Keflavíkinni. Guðjón byrjaði þó ekki að taka þátt fyrr en á Blönduós en samt fékk hann 3 stig. Ótrúlegur árangur hjá okkur.
Nú ætla ég að hætta að bulla hér og fara í sokka og fara að gera eitthvað mis gáfulegt en hvað með það? Þangað til næst, njótið dagsins því lífið er núna.
Um bloggið
Þegar kviknar á deginum
Tenglar
Fólk á förnum vegi
- Huginn Heiðar Ofurkrúttið
- Berglind vinkona
- Stína Blöndal
- Árný
- Ragnheiður
Vert að skoða
Bloggvinir
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Ásdís Rán
- Áslaug Helga Hálfdánardóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gerða Kristjáns
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- .
- Dísa Dóra
- Ólafur fannberg
- Huld S. Ringsted
- Gísli Torfi
- Halla Rut
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Lady Elín
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Gulli litli
- Bryndís
- Brynja skordal
- Vertu með á nótunum
- Guðrún Hauksdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Anita Björk Gunnarsdóttir
- Bwahahaha...
- Ragnar Emil
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi þér vel í vinnu leitinni
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 15.8.2008 kl. 22:44
Tíminn líður hratt á Gervihnattar Öld..... ég meina Borgarstjórar lifa á Ljóshraða... Sumarið að fara að syngja sitt síðasta..... nei nei enn 2 mánuðir af sælu og sól segi ég
Gísli Torfi, 16.8.2008 kl. 07:36
HAHAHAHAHAHAHaHAHA!!!!!
Ég veit sko hvað er sameiginlegt með hóruhúsi og vita
við Logi byðjum að heilsa öllum =)
Evaa<3, 19.8.2008 kl. 22:43
Brynja skordal, 20.8.2008 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.