Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Hugleiðing.

Litli Gullrassinn minn, Huginn Heiðar hleypur núna syngjandi um grænar grundir, klappandi saman lófunum, með stjörnublik í augunum.  Við Mummi höfum áður sagt að við trúum því að hann hafi valið þennan dag til að kveðja okkur. Hann var búinn að kveðja alla sína nánustu ættingja sína svo fallega. Afmælisdagur bróður hans var liðinn. Huginn valdi sinn dag. Ég er honum svo þakklát fyrir þann tíma sem við fengum saman sem var mun lengri en allir reiknuðu með. Ég er svo þakklát fyrir að í stað þess að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir þá ákvað hann sjálfur að taka þær. Ég er svo þakklát fyrir að fá að vera hjá honum þegar hann kvaddi þessa jarðvist. Ég óttaðist það mest að við myndum ekki geta verið hjá honum á þeirri stundu og hann yrði einn. En hann sá til þess að það varð ekki.

Ég og Huginn

Núna er mikið tómarúm í hjarta mínu en einnig mikið þakklæti um leið. Ég á fullt af yndislegum minningum um litla Gullrassinn minn til að ylja mér á sem gerir allt auðveldara. Ég er hvorki honum né öðrum reið heldur virði ég hans ákvörðun og að vissu leiti skil ég hana líka. Hann hefur kennt mér að líta öðrum augum á lífið en áður.

Við fórum fjölskyldan í gær og hittum Hugin. Hann er svo fallegur liggjandi á bænapúðanum sínum með Skvísuna sína og Vin í fanginu. Hann er svo friðsæll og fagur. Það er eins og hann brosi til okkar.

Ég og fjölskylda mín viljum þakka fyrir allar þær kveðjur sem okkur hafa borist. Þessi stuðningur og hlýja sem við finnum er okkur mikilvægur og ómetanlegur. Takk fyrir.


Huginn Heiðar látinn

Huginn Heiðar látinn.

Litli drengurinn minn, Huginn Heiðar Guðmundsson lést í nótt á Gjörgæsludeild Landspítalans. Huginn veiktist í gær og fórum við með hann á Barnaspítalann í gærkvöldi. Hann var fluttur á Gjörgæsludeildina skömmu síðar þar sem hann lést í nótt.

Huginn Heiðar

23. mars

Þegar ég var ung þá eignaðist ég börn næstum á hverjum degi.

Í dag er hann Guðjón Örn orðinn 15 ára. Guðjón er mikill gæi með góðan húmor sem hann notar á skemmtilegan hátt. Leikur á alls oddi og er ekki leiðindunum fyrir að fara í návist hans.

Guðjón Örn

Guðjón Örn að láta eitt gullkornið falla.

Til hamingju með daginn Guðjón Örn.


22. mars

Í dag eru 17 ár liðin frá því ég fékk frumburðinn minn í fangið. Á þessum 17 árum hefur hún sýnt að henni er alls ekki sama um náungann og vill allt fyrir alla gera. Lítilmagninn á sér þarna hauk í horni. Einstaklega ljúf en samt ákveðin persóna hér á ferð.

Hafrún Eva
Afmælisbarnið í keilu
Til hamingju með daginn elsku Hafrún Eva mín.

Föstudagurinn langi

Föstudagurinn langi er nú að kveldi kominn. Þegar ég var lítil stelpa þá var þetta einn sá leiðinlegasti og lengsti dagur ársins. Það var nákvæmlega ekkert að gerast og það mátti nákvæmlega ekkert gera. Þessi dagur var lengri en aðfangadagur sem var þó slatta langur. Enda maður búinn að bíða og bíða eftir því að jólin færu að koma og á aðfangadag eru þau alveg að koma. En þá var eitthvað til að hlakka til, sem gerði þann langa dag alltaf svo skemmtilegan. Það var ekki þannig með föstudaginn langa. Hann var bara langur og leiðinlegur.

Núna er þessi dagur ekki eins langur og leiðinlegur og hann var. Núna geri ég það sem mig langar til á föstudeginum langa og hlakka til að horfa á kvöldfréttir sjónvarpsstöðvanna. Og ég horfi spennt á báða fréttatímanna. Bara til þess að sjá alla klikkhausana á Filipseyjum ganga um götur með poka á hausnum, berjandi sjálfa sig með svipum, svo mikið að bök þeirra eru skorin næstum inn að beini. Líka til að sjá þá sem er enn klikkaðri og láta negla sig fasta á krossa sem síðan eru reistir upp svo allir geti séð hvað þeir eru klikkaðir. Allt í nafni trúarinnar og til að fá syndaaflausn fyrir framdar syndir liðins árs. Hvað gerðu þessir menn eiginlega af sér til að finnast þeir verðskulda slíka refsingu? Kaþólska kirkjan segir að þetta sé ekki svo skynsamleg gjörð hjá þessum klikkhausum en bannar hana þó ekki. Kannski finnst þeim þetta bara einstaklega gott framtak en geta almenningsálitsins vegna ekki sagt frá því. Kirkjan ráðleggur bara sótthreinsun á nöglum og svipuólum svo síður komi til alvarlegra sýkinga.  Mér finnst þetta bara vera klikkun.


Borða, borða, borða mmm

Ég og flestir úr minni fjölskyldu fóru í fermingarveislu í gær hjá annarri systurdóttur minni sem lætur fermast þetta árið. Veislan var frábær, fullt af fólki og maturinn æðislegur. Borðaði eins og venjulega þannig eins og þetta væri síðasta máltíðin í viku og flestir myndu sennilega segjast vera enn saddir. En ekki ég. Ég er auðvitað orðin glorhungruð og ætti því að fá mér eitthvað að borða í staðinn fyrir að skrifa hér. Borða bráðum. Hitti í veislunni litla frænku mína sem fæddist í desember í fyrsta sinn. Þvílík dúlla. Verð að viðurkenna að þegar maður sér svona fallegt barn þá langar mig smá í eitt lítið líka. Ef ég gæti fengið 100% vissu fyrir því að ég myndi eignast heilbrigt barn þá myndi ég jafnvel skella í eins og eitt en þar sem líkurnar á svipuðum veikindum og hrjá Gullrassinn minn eru mjög miklar þá hreinlega þori ég ekki að eiga fleiri börn.  Heigulsháttur kannski en okkar Unnustans ákvörðun að vel ígrunduðu máli.

Eftir þarmahreinsun í síðustu viku var ég svo heppin að næla mér í smá kvef og finnst ég eiga svolítið pínu bágt núna með síflæði úr nösum og rauðan nebbann eftir snýturnar. Við förum á eftir og sækjum Gullrassinn og ég vona að mér takist ekki að smita hann af þessu kvefi mínu. Núna hlakka ég til fimmtudagsins því þá mun hin systurdóttir mín láta fermast og þá er líka veisla og ég veit matseðilinn mmm.

Held ég ætti að stökkva til og ákveða matseðilinn yfir páskana fyrst ég er í svona miklu matarfíling.


Dásemd framundan

Mönnum með miklum gáfum eru síst fyrirgefnar smá yfirsjónir - Þetta er spakmæli vikunnar í boði dagbókarinnar.

Það var eins gott að ég náði smá slökun í síðustu viku því þessi vika er búin að vera töluvert fyrirhafnarsöm. Við fórum og sóttum Gullrassinn í Rjóður síðasta föstudag. smithættaFannst hann svolítið slappur og skrifaði það á þreytu. Komst að annarri niðurstöðu á laugardag því barnið var orðið töluvert lasið. Hann hafði nælt sér í þennan fína magavírus og eins og venjulega fór hann ekki vel í Gullrassinn. Hann er með öðrum orðum búinn að vera töluvert veikur alla vikuna með mikil uppköst og niðurgang ásamt mikilli vanlíðan. Sofið illa og þurft að láta mikið halda á sér og ganga um gólf. Þetta væri svo sem ekki alslæmt ef hann hefði ekki náð að smita alla aðra sem komu nálægt honum líka. Þannig að vikan er búin að fara í yndislegan magavírus. Núna eru allir orðnir frískir aftur og Gullrassinn minn liggur hér á gólfinu með leikföngin sín og leikur sér á fullu með léttu hjali og hlátri. Yndislega dásamlegt að hlusta á hann. Þegar hann er veikur þá brosir hann ekki einu sinni smá.  Hinir fjölskyldumeðlimir komnir í vinnu og skóla aftur. Börnin fóru glöð í bragði í skólann í morgun enda síðasti skóladagur fyrir langþráð páskafrí. Gullrassinn fer síðan í Rjóður aftur á morgun, átti að fara í dag en við viljum leyfa honum að jafna sig aðeins betur, og verður fram á mánudag.

fermingDásamlegir tímar framundan fyrir fólk eins og mig. 2 systurdætur mínar munu staðfesta skírnarheitin á næstu dögum, önnur á sunnudaginn og hin næsta fimmtudag. Foreldrar þeirra munu halda upp veislaá áfangann með veislum og dásemdum. Ég hlakka mikið til að hitta alla fjölskylduna mína samankomna á sama stað, á sama tíma. Alltof sjaldan sem það gerist. Síðan koma páskarnir og þá fæ ég líka fullt af dásamlegum kræsingum. Sem ég segi dásamlegir tímar fram undan og eins gott að vera búin að jafna sig á magvírusnum góða.

Þangað til næst, elskið friðinn og strjúkið kviðinn Grin


Fór á rúntinn

Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir - Þetta spakmæli er í boði dagbókarinnar.

Gullrassinn er enn og aftur í Rjóðrinu og er því þessari viku eytt í slökun. Ja, eða slökun eftir aðstæðum. Fór til dæmis aftur upp í rúm í morgun eftir að hafa skutlað börnunum í skólann og steinsofnaði, vaknaði ekki fyrr en unnustinn vakti mig með ljúfum kossi í hádeginu. Undursamlegt að vakna svoleiðis.

brim

Seinnipartinn í dag datt okkur í hug að skreppa aðeins á rúntinn. Gátum talið börnunum trú um að við værum að fara að skoða hús sem við værum að fara að kaupa í Höfnum. Stoppuðum síðan fyrir utan lítinn ljótann kofa og sögðum að þetta væri húsið. Mikill feginleiki sveif yfir bílnum þegar búið var að leiðrétta lygina.

Eldey í fjarska

Fórum síðan áfram út að Reykjanesvita. Veðrið var yndislegt og töluvert brim. Varð alveg heilluð af því og ákvað að taka nokkrar myndir af því. Held að hún Gurrí bloggvinkona mín í Himnaríki sé búin að smita mig af brimáhuga.

svaka skvetta

 

Á bakaleiðinni komum við aðeins við á brúnni milli heimsálfanna og þrátt fyrir að unglingurinn sé á hækjum fannst honum ekki mikið mál að hoppa upp á brúna, yfir hana og síðan langt út í hraunið og síðan til baka.

 

Fjölskylda í Hvergilandi

Hann var reyndar orðinn dálítið lúinn þegar við komum niður í bíl aftur. Hann talar mikið um hvað þetta hopp reyni mikið á magavöðvana og handleggina. Það er gott finnst honum, því þá stækka vöðvarnir. Hann hefur lengi dreymt um útlit eins og kraftajötnar og vaxtaræktarmenn hafa. Upphleyptar æðar á handleggjum fá sérlega aðdáun.

 Himininn

Farin í bili og þangað til næst njótið samveru með þeim sem þið elskið.


Barn í molum

Guði sé lof fyrir einstæða sokka- Þetta spakmæli er í boði Unglingsins .

Ég sagði frá því að unglingurinn hefði ákveðið að sparka gólfinu í íþróttahúsinu í mark og uppskorið stórt bágt á stórutána og næstu tá við hliðina. Hann hefur verið svo mikið aumur og kvartað helling sem er mjög sérstakt hjá honum því hann hefur háan sársaukaþröskuld og kvartar yfirleitt ekki. Skoðaði því hina meiddu tá og leist ekkert alltof vel á hana og ákvað því að skella barninu til læknis í frekari skoðun. Fórum því í morgun og útkoman var að barnið er brotið í mél. Kannski ekki alveg í mél en á myndinni sem var tekin í morgun komu í ljós tvær sprungur í sitthvorum lið á stóru tánni ásamt tognun á liðböndum og blæðingum inn á liðina. Aumingja snúllinn minn. Hann hoppar bara á hækjum um allt og hefur svo sem gaman af enda einstaklega fær í því að sjá spaugilegu hliðarnar á flestum hlutum. Honum þótti þó verra að missa af því að fara á skauta með bekkjarfélögunum í gærkvöldi. Ég þarf síðan að hafa tal af rándýra fyrirtækinu Stoðtækni til að fá hjá þeim einhverskonar spelku til að hafa undir fætinum næstu vikurnar svo drengurinn geti gengið á sem sársaukaminnstan hátt.

Annars sagði læknirinn við strákinn að hann ætti alvarlega að íhuga að snúa sér alfarið að skákinni.


Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 110298

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband