Í fréttum er alltaf þetta helst

Alltaf gaman að fréttum á Íslandinu okkar góða. Undanfarið höfum við farið hamförum yfir meintum fordómum og rasisma sumra Frjálslyndra á Akranesi, síðan kom blessuð Júróvisjón þar sem við öll sem eitt vorum búin að vinna og enn einu sinni voru uppi vangaveltur um hvar best og hægt væri að halda keppnina að ári. Lausnin fékkst og hún er Moskva, flott mál þó ég hafi ekki endilega verið sammála austurblokkinni, mér fannst lagið frá Rúmeníu flottara, en það skiptir ekki máli núna. Síðan leit allt út fyrir að einu fréttirnar sem við fengjum væru frá Eldhúsdagsumræðum á Alþingi og þessum venjulegu olíuverðshækkunum, því ekki eru vörubílstjórar að gera neitt fjölmiðlum til skemmtunar, ja nema kannski Sturla sem var svo heppinn í kreppunni að fá auglýsingasamning við EJS. Þá gerðist það að það var fótboltaleikur spilaður í Keflavík þar sem meintir fordómafullir rasistar frá Akranesi komu i heimsókn. Leikurinn spilaður og Akranes tapar. Þjálfarinn missir sig yfir tapinu og lætur orð falla í hita leiksins í garð KSÍ og dómarans sem fjölmiðlar fara nú hamförum yfir. Frábært fyrir mig sem hef gaman að fylgjast með fréttum, alltaf eitthvað stuð í gangi og engin lognmolla. Kannski ég ætti að prófa þennan vettvang, mér myndi a.m.k. ekki að leiðast. 

Þangað til næst, verið góð við hvert annað þó svo það komi gúrkutíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Torfi

Já nóg í fréttum.. hvað segiru var eh rasistafólk frá skaganum á leiknum... ekki gott.

 Mikið er ég nú ánægður að vera ekki mikið á ferli þar sem vondir andar eru.. enda horfi ég lítið á sjónvarp... alltof mikið af rusli sem maður getur fengið í hausinn.. best að vera ómengaður og vera bara í Happy-dal

eigðu góða daga Fjóla mín 

Gísli Torfi, 27.5.2008 kl. 04:36

2 identicon

bara kvitta fyrir innlitið

Fríða K (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 22:05

3 Smámynd: Þórunn Eva

knús knús á þig sæta mín... LOVE á þig og þína....

Þórunn Eva , 28.5.2008 kl. 16:53

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Rasistakveðjur Meira fjörið alltaf hreint!

Guðríður Haraldsdóttir, 28.5.2008 kl. 22:54

5 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

Innlitskvitt

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 29.5.2008 kl. 11:43

6 identicon

Það var alveg rosalega gaman að hitta ykkur hjónin og börnin ykkar á hátíðinni á Barnaspítalanum í dag.  Frábært hvað þið eruð alltaf skemmtileg, dugleg og brosmild.
kv. Unnur

Unnur (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 110302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband