Sumarhátíð og nett áfall.

Í dag fórum við unnustinn í Rjóður á sumarhátíð sem haldin er þar árlega. Það var gaman og skemmtilegt en ég væri að ljúga ef ég segði ekki að sporin frá bílastæðinu inn í húsið hefðu ekki verið erfið. Ég var bæði með hnút í maganum og aukinn hjartslátt enda ekki farið þangað síðan áður en Huginn dó. Starfsfólkið tók vel á móti okkur og sögðu að þau væru svo ánægð með að við skyldum koma. Þau sakna auðvitað líka Hugins enda stór partur af starfi þeirra. Mörg barnanna spurðu um Hugin, hvar hann væri og afhverju hann hefði ekki komið. Þau sættust á að hann væri núna Engill og því sæjum við hann ekki. Sumarhátíðin tókst vel enda frábært veður. Hreimur í Landi og Sonum kom að venju og söng nokkur lög fyrir börnin, Fjölnir (fyrrverandi Spicegirlsmaki) kom með tvo hesta og leyfði börnunum að fara á hestbak sem þeim fannst frábært. Hann vildi reyndar líka fá foreldrana á bak og ég var að spá í að skella mér en þá mundi ég eftir þvi að ég væri í þröngu pilsi og hann var ekki með söðul Blush Gosi ætlaði líka að koma en greyið fékk kvef í sitt laaanga nef og komst því ekki. Lasinn heima með hor og slef.

 

 

Fólk á AusturvelliSkruppum aðeins eftir sumarhátíðina niður á Austurvöll þar sem fjöldi fólks var samFriðrik Þór var líka á Austurvellian komin með það eitt að markmiði. Sýna sig og sjá aðra um leið og sólin var sleikt. Frábært að vera þarna og hittum við Bebbu, vinkonu okkar af Barnaspítalanum. Hún er í sambærilegum sporum og við. Barnið hennar dó. En það var samt gott að hitta hana, sjá hana og tala við hana. 

 

 

Annars varð ég fyrir nettu áfalli í dag. Það lét mig leiða hugann að því hvernig ég er ásýndum aftanfrá á bláfáknum mínum. Er jafnvel að hugsa um að láta hann frá mér, áfallið var það mikið. það eru engin orð sem geta lýst áhyggjum mínum en ég vona að ég skiljist engu að síðurBlush

aftanútlit á hjóli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Fjölnir er eðaldrengur, þekki hann vel.

Fjóla mín, sporin hafa verið þung en mikið líst mér vel á að þið hafið farið ...þetta er áreiðanlega ákveðin heilun. Ég átti erfitt með staðina sem tengdust Himma.

Ragnheiður , 21.6.2008 kl. 22:16

2 Smámynd: Dísa Dóra

Gott hjá ykkur að fara á hátíðina.  Eins og Ragga segir þá er þetta örugglega ákveðin heilun.

Knús

Dísa Dóra, 22.6.2008 kl. 10:35

3 identicon

Duglegir krakkar .En í sambandi við hjólreiðar eru minnstakosti 40 kíló í svipaða mynd hjá þér

Mamma (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 20:22

4 Smámynd: Halla Rut

Gott hjá ykkur að fara. Þung spor vitanlega en gott samt að taka í sig kjark og láta sjá sig og sjá aðra.

Halla Rut , 25.6.2008 kl. 19:45

5 Smámynd: Gísli Torfi

Já það hefur verið gaman hjá ykkur og já Fjölli er drengur góður en myndin þarna af Plummerinum er Priceless ... you just made my day

kveðja úr landi Lúxorsins 

Gísli Torfi, 28.6.2008 kl. 06:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 110309

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband