Hjólreiðastígur

Um daginn vorum við hjónaleysin stödd út í kirkjugarði ásamt Ásdísi okkar, fór hún að tala um hvernig hún gæti komist þangað sjálf á hjólinu sínu. Eftir smá skoðun komumst við að því að það er ekki möguleiki nema að hún færi út á Garðveginn sem er stórhættulegur og þar með ekki æskileg leið fyrir 11 ára gamalt barn á reiðhjóli né heldur nokkurn annan. Hún var ekki alveg sátt við þetta og ákvað að panta sér tíma í viðtal með bæjarstjóranum. Var fundurinn á miðvikudagsmorgun. Árni bæjarstjóri tók virkilega vel í erindi hennar um að leggja hjólreiðar og göngustíg frá Keflavík að kirkjugarðinum. Málið verður sett í vinnslu nú þegar og verður vonandi lokið við lagningu stígsins á þessu ári.

Þar sem þessi hjólreiðastígur er nú kominn á framkvæmdaáætlun vegna Ásdísar og að nú er átak í landinum um að hjóla í vinnuna ákvað ég að heyra gargið í hjólhestinum mínum sem býr í bílskúrnum og viðra aðeins fákinn. Þar sem ég geri ekki neitt þá gat ég ekki hjólað í vinnuna en leysti vandamálið með því að hjóla í kringum götuna mína. Og Vá, ég er algjörlega glötuð. Ég er í svo hrikalega lélegu formi að ég hef aldrei vitað annað eins. Var búin á því eftir þennan örstutta hring. Þar sem þetta er ekki æskileg staða að mínu mati er markið sett á að koma sér í aðeins betra form( það getur ekki versnað) og hef ég því farið út að viðra fákinn síðan. Leiðin lengist aðeins í hvert sinn þannig að þetta á ekki að þurfa að verða neitt mikið mál. Þarf bara að nenna því. Er reyndar alveg botnlaust þreytt þessa vikuna. Vakna auðvitað eldsnemma en er alveg búin á því um 11 og þarf þá að leggja mig og síðan aftur upp úr 3 og síðan er ég sofnuð í sófanum eldsnemma. Ekki minn stíll. Kannski er ástæðan fyrir þessari þreytu minni sú að við fórum á fund með teyminu á Gjörgæsludeildinni í vikunni. Þar ræddum við öll um nóttina sem Huginn ákvað að deyja og einnig um aðrar innlagnir hans á Gjörgæsluna. Þetta var einstaklega góður fundur þar sem starfsfólkið sagði okkur m.a. frá ýmsum breytingum sem hafa orðið á deildinni og fleiru sem eingöngu varð vegna Hugins og við létum þau vita af ánægju okkar með að fá að vera viðstödd endurlífgunartilraunirnar. Það er ekki vanalegt að aðstandendur séu viðstaddir endurlífgun. Það er hægt að lesa betur um þennan fund okkar á heimasíðu Gullrassins míns. Það er svo gott að vita af því að líf hans var til margs góðs á mörgum stöðum og hann breytti svo miklu öðrum til hagsbóta.

Er farin að reyna að hrista af mér slenið en þangað til næst vil ég minna á þetta:

Sunnudaginn næstkomandi munu konur standa saman, í bókstaflegri merkingu, fyrir betri heimi komandi kynslóðum til handa. Konur geta tekið sig saman og staðið í garðinum heima hjá sér, í sumarbústaðnum eða hvar sem þær eru staddar kl. 13 á Hvítasunnudag.

Á Reykjavíkursvæðinu er konum, og ástvinum þeirra, stefnt í Laugardalinn nánar tiltekið við Þvottalaugarnar. Það verður safnast saman og íhugað í þögn í 5 mínútur um betri heim með hreinu drykkjarvatni, nægum mat og lífi án ofbeldis, öllum börnum til handa. Hringt verður inn í þögnina kl. 13:00.

„Standing Women" er alþjóðleg hreyfing kvenna sem tók höndum saman 11. maí á síðasta ári fyrir betri heimi. Í ár verður sami háttur á og nú með þátttöku íslenskra kvenna en í fyrra stóðu konur saman í öllum heimsálfum, samtals 75 löndum. Á þessari slóð má sjá myndband frá atburðinum í fyrra: http://www.youtube.com/watch?v=_eNJ4oVQKxU

Undirrituð samtök kvenna á Íslandi eru í forsvari fyrir viðburðinum hér á landi og hvetja félagsmenn sína jafnt sem konur á landinu öllu til að taka þátt!
Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, UNIFEM á Íslandi, Blátt áfram og Stígamót.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Yndisleg færsla Fjóla mín, ég ætla að skreppa á síðuna hans og lesa. Hjartans molinn litli. Hilmar minn var sérlega barngóður og ég vona að þeir hittist á öðru sviði, báðir heilir heilsu og sáttir. Knús á ykkur öll elskurnar

Ragnheiður , 9.5.2008 kl. 14:12

2 Smámynd: Ólafur fannberg

góða helgi

Ólafur fannberg, 9.5.2008 kl. 16:57

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég skrapp yfir á hina síðuna og las um fundinn. Þar er greinilega frábært fólk.

Gott að þið fáið göngu- og hjólreiðastíg, klár stelpan þín og flott hjá Árna að taka svona vel á móti henni. 

Knús í bæinn, snúllan mín. Yndisleg færsla hjá þér að vanda.

Guðríður Haraldsdóttir, 9.5.2008 kl. 19:50

4 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Frábær færsla, njótið helgarinnar  

Guðrún Hauksdóttir, 9.5.2008 kl. 20:13

5 identicon

hún Ásdís þín veit greinilega hvernig á að framkvæma hlutina, gott hjá henni. Ég tek hreinlega ofan fyrir henni. Gangi þér vel dúlls.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 20:19

6 identicon

Sæl.

Í þetta sinn ákvað ég að kvitta fyrir komuna.

Man alltaf eftir gullrassinum þínum og fallega brosinu ....

Gangi ykkur allt í haginn.

Kveðja Inda (snigill)

Inda (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 22:50

7 Smámynd: Þórunn Eva

STOLT af dóttur þinni... hún verður einhvern tímann góð... knús og koss á ykkur

Þórunn Eva , 13.5.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband