Góð Ljósanótt

Þá er Ljósanótt að baki. Afskaplega skemmtileg helgi með mörgum menningarviðburðum. Reyndi að skoða sem flestar sýningarnar en varð að vísu frá að hverfa mjög skyndilega þegar ég fékk símtal um að lítil stúlka hefði slasast. Hún var að leika við Ásdísi mína og vinkonu hennar. Ég stökk auðvitað af stað til stelpnanna og hringdi í móðurina á hlaupunum. Þegar ég kom til skottunnar var hún skelfingu lostin og talsvert meidd en náði að róa sig niður við að sjá vinkonu sem hún treysti. Var ákveðið að drífa hana á sjúkrahúsið, þar sem móðir hennar kom og tók við henni, því meiðslin voru þess eðlis, hún var síðan send til Reykjavíkur til frekari rannsókna.

 

Kvöldið leið síðan í góðra vina hópi, var grillað og skemmt sér heima við og síðan var farið aftur niður í bæ og notið skemmtidagskráinnar. Eftir stórkostlega flugeldasýningu, sem hvarf svolítið í sjálfri sér, hitti ég föður slösuðu stúlkunnar  sem er fyrrverandi mágur minn og nýju konuna hans og var sú slasaða með þeim. Þegar ég ætlaði að tala við þau þá fékk ég heldur betur kaldar kveðjur frá þeim. Þar var mér tjáð að þar sem ég skildi við bróður hans þá tilheyrði ég fortíðinni og hann vildi ekkert við mig tala og ég skildi halda mig algjörlega fjarri þeim. Þeim kæmi ég ekki við lengur. Mér sárnaði þetta því ég veit ekki til að ég hafi unnið fyrir þessari framkomu af þeirra hálfu. En samkvæmt  kenningu og skoðunum föður litlu stúlkunnar og fósturmóður, þá hefði ég átt að segja í símann þegar dóttir hans slasaðist að mér kæmi stelpan ekkert við hún væri í minni fortíð og ég á ekki að púkka neitt upp á hana og halda síðan áfram að skoða sýningarnar áhyggjulaus með minni fjölskyldu. Það sem mér finnst enn leiðinlegra er að þetta var greinilega ekkert fyllerísröfl í þeim þar sem fósturmóðurin hefur hefur farið ljótum orðum um mig á bloggsíðu sinni síðan og hefur verið dugleg að kommenta hjá öðrum um hversu slæm ég er.

 

Þrátt fyrir þessa leiðinlegu og óvæntu uppákomu þá naut ég hátíðarinnar að fullu. Við fengum fullt af gestum um helgina enda liggur heimilið vel við, í um 5 mínútna göngufæri frá aðalsviðinu. Ég þakka öllum sem komu og skemmtu sér með okkur á Ljósanótt, takk fyrir frábært kvöld og einnig þeim sem stóðu að hátíðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður punktur!!

Berglind (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 20:16

2 identicon

Svona framkoma hjá mági þínum fyrrverandi segir margfalt meira um hann sjálfan en þig.  Gott að þið áttuð öll góða helgi.

Halla Jökulsd. (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 22:03

3 identicon

Fjóla mín, þú átt ekki skilið svona framkomu, ég veit betur hvernig þú ert

Jón B. Sigmundsson (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 22:22

4 Smámynd: Fjóla Æ.

Takk fyrir hlý orð.

Ég hélt það einmitt að ég hefði ekki gert þeim nokkurn skapaðan hlut, einmitt staðið með þeim og varið þau þegar enginn vildi við þau tala, þegar þau voru nýbyrjuð saman.

Fjóla Æ., 5.9.2007 kl. 22:31

5 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

issópissó... bara að ignora svona furðufiska!  Lítið annað hægt að gera held ég. 

Þorði alls ekki að banka uppá hjá þér um helgina sökum heilsuleysis.  Ætlaði sko ekki að bera mína skítaflensupest inn til ykkar... ég virðist hafa komið afleggjara þó í bæði Árný systur og gestgjafa mína þarna fyrir sunnan

Rannveig Lena Gísladóttir, 5.9.2007 kl. 23:02

6 Smámynd: Gerða Kristjáns

Knús á þig

Gerða Kristjáns, 5.9.2007 kl. 23:35

7 Smámynd: Mummi Guð

Það er bara svona Fjóla mín að fólk er misjafnlega mikið þroskað og þroski fer ekki alltaf eftir aldri. En svona er þetta bara wola wola og við getum ekki ákveðið hverjum við getum treyst wola wola.

Mummi Guð, 6.9.2007 kl. 12:13

8 Smámynd: Árný Sesselja

Svona fólk á greinilega bágt !  Og framkoman segir meira um þeirra eigin karakter en þinn.   Og ef ég þekki þig rétt áttirðu svona framkomu alls ekki skilið.

Árný Sesselja, 6.9.2007 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 110334

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband