2.11.2008 | 00:38
Lífið er stundum erfitt, en í samanburði við hvað?
Þar sem ég er næstum heimsins latasti bloggarinn þá hef ég stundum hugsað um að hætta að blogga en akkúrat þá langar mig svo mikið til að blogga þannig að ég ætla ekki að hætta. Það verður bara að fá að líða langt á milli.
Reyndar á þetta bloggleysi sér líka ástæður en þær eru að mér finnst ég hafa svo mikið að gera núna sem ég í raun skil ekki. Ég vinn 8 tíma í leikskólanum þar sem ég reyni að kenna grislingunum nauðsynlega undirstöðu fyrir grunnskóla síðan tekur við um það bil 8 tíma vinna hér heima við hin ýmsu heimilisstörf. Þetta gera um 16 klst á sólarhring sem er ekki neitt því ekki fyrir svo löngu vann ég í 28 tíma á sólarhring og fannst það ekkert mál. Ég skil ekki hvað ég er að kvarta þannig að það er best ég hætti því hér með.
Annars það helsta sem ég hef tekið mér fyrir hendur undanfarið er að ég er búin að nota heita sullupollinn minn þvílíkt mikið og mæli með að allir fái sér slíkan unaðsstað. Með betri fjárfestingum sem ég hef gert.
Um síðustu helgi fór ég og mín fjölskylda á Hótel Loftleiði til að taka á móti gjafabréfi frá Vildarbörnum. Ásdís Rán fékk úthlutað draumaferðinni sinni og þar sem við erum svo heppin að vera í hennar fjölskyldu þá fáum við að fljóta með í hennar draumaferð. Við vitum reyndar ekki alveg hvenær við förum en það er allt í skoðun. Við vitum þó hvert við viljum fara.
Síðan í dag vorum við hjónaleysin á Grand hótel að flytja fyrirlestur á ráðstefnu gjörgæslu-og svæfingarhjúkrunarfræðinga. Fyrirlesturinn hlaut mjög góðar undirtektir og margar fyrirspurnir og að lokum fengum við fallegan blómvönd fyrir okkar framlag. Ég vona bara að það sem við höfðum að segja frá muni koma öðrum til góða sem þurfa á þjónustu gjörgæslu að halda. Það var ekki mikið mál að flytja þennan fyrirlestur en undirbúningurinn var stundum svolítið erfiður. Við þurftum að rifja upp viðkvæm augnablik og síðan ákváðum við að hafa myndir frá lífi Gullrassins okkar rúllandi undir lestri mínum. Það að fara í gegnum allar myndirnar var stundum ekkert auðvelt en að lokum völdum við tæplega 500 til að fara með. Margar þeirra voru áður óbirtar en við ákváðum að sýna þær þarna.
Núna er ég í miklum pælingum með framtíðina og held að ég sé að taka ákvörðun um hana og það sem meira er rétta ákvörðun. Sko mig. En er maður samt ekki alltaf að pæla í framtíðinni hvort sem er? Eða er núið það sem maður hugsar bara um? Það er svo sem í samræmi við það sem ég segi svo oft "lífið er núna, njóttu þess". Hef samt fulla trú á því að hugsunin um framtíðina eigi stóran þátt í því að gefa lífinu tilgang.
En þangað til næst mæli ég með því að brosa því lífið er núna og því á að grípa augnablikið og njóta.
Um bloggið
Þegar kviknar á deginum
Tenglar
Fólk á förnum vegi
- Huginn Heiðar Ofurkrúttið
- Berglind vinkona
- Stína Blöndal
- Árný
- Ragnheiður
Vert að skoða
Bloggvinir
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Ásdís Rán
- Áslaug Helga Hálfdánardóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gerða Kristjáns
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- .
- Dísa Dóra
- Ólafur fannberg
- Huld S. Ringsted
- Gísli Torfi
- Halla Rut
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Lady Elín
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Gulli litli
- Bryndís
- Brynja skordal
- Vertu með á nótunum
- Guðrún Hauksdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Anita Björk Gunnarsdóttir
- Bwahahaha...
- Ragnar Emil
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Um að gera að lifa lífinu, sérstaklega þar sem það er í gangi akkúrat núna. Því verður ekki slegið á frest. Gangi þér vel með þessa spennandi ákvörðun og ég efast ekki um þér eigi eftir að farnast vel. Kveðja til allra.
Elin
Lady Elín, 3.11.2008 kl. 17:33
Það er engin spurning Fjóla mín að þið hafið komið með mikilvægar upplýsingar og þörf innlegg á þessum fyrirlestri, enda með mikla reynslu og reynslan oftar en ekki mikilvægari og meira mark á takandi en háskólagráður á þessu sviði.. hefði sko viljað hlusta! Til hamingju með draumaferð dótturinnar, þetta verður æði! Já, lífið er sko hér og nú og um að gera að njóta þess. Risaknús á þig Fjóla mín. Bestu kveðjur
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 4.11.2008 kl. 08:17
Hva er mér ekki boðið með í draumaferðina?? Nei bara grín en til hamingju með þessa kærkomnu ferð verð bara með ykkur í anda
Berglind (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 09:50
Til hamingju með ferðina og vonandi eiga allir eftir að njóta hennar í botn
Knús til þín
Dísa Dóra, 6.11.2008 kl. 01:13
Til lukku með ferðina :)
annars bara kvitt og knús
Stína Blöndal (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 13:50
Duglega stelpan mín, já og Mummi þinn auðvitað líka...
., 6.11.2008 kl. 17:54
Brynja skordal, 11.11.2008 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.