Með brosi birtir

Spakmæli dagbókarinnar minnar frá því í síðustu vikur er á þessa leið: Hamingja heila ævi, enginn maður þyldi slíkt, það yrði jarðneskt víti.  Kannski yrði lífið víti ef ekkert blési á móti, aldrei. Ég veit það ekki en stundum finnst mér blása full mikið á sumt fólk. Ég er þó alveg sannfærð um að það sé alltaf auðveldara að berjast á móti storminum með bros í hjarta og sál. Það er ekki alltaf auðvelt en það verður að minnsta kosti að reyna og trúa.

Undanfarna daga hef ég verið að dunda mér við að taka herbergi Prinsessunnar minnar í gegn. Spartlað, málað, smíðað og leikið mér aðein að rafmagninu. Það var reyndar ekki vanþörf á smá yfirhalningu því það hefur ekkert verið gert fyrir herbergið síðan við fluttum hingað fyrir 4 árum. Það vantaði parketlista, innstungurnar voru ýmist ótengdar eða illa farnar. Ljósin voru blá og það passar illa við bleikt. Núna eru komnir listar og nýjar innstungur, veggirnir bleikir, flottir risa stórir púðar í rúmið til að nota þegar setið er í rúminu, ný falleg ljós og lampi í óskalitnum. Sem sagt bara flott. Stelpan er alla vega mjög sátt og hamingjusöm með þessa breytingu.

Þangað til næst, munið að brosa þótt stundum sé stormurinn í fangið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Gísladóttir

Tekuru svona yfirhalningar að þér ?  Hér er nefnilega eitt stykki prinsessuherbergi sem þarfnast yfirhalningar ....... og ég því miður hef engin svona "Völu Matt gen" í mér    Og ef þú tekur ekki að þér yfirhalningar þá á ég samt alltaf kaffi ef þú ert á ferðinni .......

Anna Gísladóttir, 21.5.2008 kl. 20:47

2 Smámynd: Ólafur fannberg

innlitskvittunarkveðja

Ólafur fannberg, 21.5.2008 kl. 22:53

3 identicon

Má bjóða ykkur "hjónum" miða á Johnny Logan tónleikana á morgun?

Fríða K (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 08:24

4 identicon

frítt að sjálfsögðu

Fríða K (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 08:34

5 Smámynd: Brynja skordal

mikið rétt í þessum spakmælum Fjóla mín og er sammála því sem þú seigir þarna vá frábært að gera svona flott fyrir prinsessuna ykkar sú hefur verið glöð hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 22.5.2008 kl. 13:45

6 identicon

Bros og birta til þín Fjóla mín, dugleg ertu.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þegar kviknar á deginum

Höfundur

Fjóla Æ.
Fjóla Æ.

Lífið er stundum erfitt en í samanburði við hvað?

Bloggarar

Topplistinn

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 110306

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband