22.5.2007 | 15:53
Indælis dagur
Þessi dagur er búinn að vera frekar annasamur miðað við venjulega daga. Byrjaði auðvitað á því að koma börnunum í skólann, reyndar ekki nema tveimum kl. 8. Hafrún þurfti ekki að mæta fyrr en tíu. Hún er að klára 10. bekkinn og núna þegar samræmdu prófin eru að baki þá er skólastarfið hjá henni frekar laust í reipunum. Ég fékk góða heimsókn í morgun þegar gamlar vinkonur mínar að norðan kíktu í smá kaffi og spjall. Síðan fékk ég gott símtal frá Guðrúnu Rjóðrinu. Hún var að bjóða mér að koma með Huginn Heiðar í sólarhringsvistun á fimmtudaginn og ákvað líka að bjóða mér að hann kæmi til þeirra aðra helgina í júní. Þetta er alveg frábærar fréttir því ég er virkilega farin að þurfa á smá fríi að halda og reyndar öll fjölskyldan. Það verður samt örugglega hálf skrítið að geta farið út úr húsi áður en minn elskulegi sambýlismaður kemur heim úr vinnu. En best að missa sig ekki í bjartsýninni að allt komi til með að ganga snuðrulaust fyrir sig og skipuleggja einhver stórræði. Veit samt af fenginni reynslu að það verður mjög margt á aðgerðalista og að mjög lítinn hluta þess verður hægt að framkvæma. Það er nefnilega stundum að ég ætla að gleypa sólina þegar loksins gefst smá tími fyrir mig sjálfa.
Um bloggið
Þegar kviknar á deginum
Tenglar
Fólk á förnum vegi
- Huginn Heiðar Ofurkrúttið
- Berglind vinkona
- Stína Blöndal
- Árný
- Ragnheiður
Vert að skoða
Bloggvinir
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Ásdís Rán
- Áslaug Helga Hálfdánardóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gerða Kristjáns
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- .
- Dísa Dóra
- Ólafur fannberg
- Huld S. Ringsted
- Gísli Torfi
- Halla Rut
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Lady Elín
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Gulli litli
- Bryndís
- Brynja skordal
- Vertu með á nótunum
- Guðrún Hauksdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Anita Björk Gunnarsdóttir
- Bwahahaha...
- Ragnar Emil
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.