6.7.2007 | 11:45
enn helgi
Kominn enn einn föstudagurinn og vikan búin að líða í rólegheitum. Huginn er enn í Rjóðrinu og gengur vel. Við förum í dag og sækjum hann. Mikið verður gott að fá hann heim aftur ég er búin að sakna hans helling. Annars gengur allt sinn vanagang hérna. Ásdís á fullu í boltanum, er að æfa með strákunum en fer og spilar leik í dag með stelpunum. Voða spennandi.
Við fórum upp á Skaga á miðvikudaginn til að sjá fótboltaleik milli ÍA og Keflavíkur og ég þarf ekkert að ræða meir um þann leik því ég held að allflestir Íslendingar hafi fengið vitneskju um hvað gekk á þar. Fórum líka í heimsókn til Péturs og Ríkeyjar. Undanfarin ár þá hef ég sagt þeim að ég ætli að koma á leikinn en aldrei farið fyrr en núna þannig að ég passaði mig á því að láta þau ekki vita fyrr en það væri pottþétt að ég myndi komast. Finnst svo leiðinlegt að segjast ætla að koma og koma svo ekki. Alltaf gaman að koma til þeirra, takk fyrir okkur.
Var að fatta svolítið í morgun. Ég hef aldrei skrifað dagbók og hef í raun aldrei ætlað það. Síðan áttaði ég mig á því að þetta blogg mitt er dagbók, þannig að ég held dagbók án þess þó að hafa ætlað það. Fyndið hvernig maður platar sjálfan sig.
Loksins kom rigning og ættu bændur því að fagna og láta af regndansi sínum. Síðan fara bændur líklega að bölva regninu því hey liggur flatt á túnum og það skemmist því það er ekki hægt að hirða það. Það var svo sem kominn tími til að rigna því allt var að skrælna og mikil hætta á sinubrunum út um allt land. Ekki spennandi að lenda í öðrum svona "Mýrabruna" eins og var í fyrra eða árið þar áður. Gríðarleg mengun, hætta og umhverfisspjöll. Þó svo að afleiðingarnar kæmu vísindamönnum á óvart. Það er ekki víst að þær yrðu sambærilegar annars staðar. Hrikalega erfitt að gera fólki til geðs. Ég reyndar skil fólk vel sem er núna í útilegu, fátt eins ömurlegt eins og blaut tjöld. Vona samt að allir skemmti sér vel á Landsmóti, N1 móti og á Írskum dögum. Þar er reyndar skjálfti í mönnum fyrst SMS skilaboðin virkuðu ekki um síðustu helgi en virka vel núna. Finnst reyndar frekar leiðinleg og ósanngjarnt að setja alla unglinga undir sama hatt og segja þau óalandi og óferjandi. Það er ekki nema brot af krökkunum sem haga sér óásættanlega og skemma allt fyrir hinum. Vissulega hafa þessir krakkar hátt og þurfa ekki að sofa eins mikið og eldra fólk en það þarf ekki að skíta alla krakkana út fyrir það.
Hætt í bili. Þangað til næst elskið hvort annað og líka unglingana.
Um bloggið
Þegar kviknar á deginum
Tenglar
Fólk á förnum vegi
- Huginn Heiðar Ofurkrúttið
- Berglind vinkona
- Stína Blöndal
- Árný
- Ragnheiður
Vert að skoða
Bloggvinir
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Ásdís Rán
- Áslaug Helga Hálfdánardóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gerða Kristjáns
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- .
- Dísa Dóra
- Ólafur fannberg
- Huld S. Ringsted
- Gísli Torfi
- Halla Rut
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Lady Elín
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Gulli litli
- Bryndís
- Brynja skordal
- Vertu með á nótunum
- Guðrún Hauksdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Anita Björk Gunnarsdóttir
- Bwahahaha...
- Ragnar Emil
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.